BIRGITTA ÝR!!!

Bloggí blogg:D

04.05.2006 15:57:28 / birgittayr

Langt síðan síðast

Hæhó. Ég hef misst ágætlega úr bloggi miða við vanalega en það er eingöngu vegna flutninga. Já kellan er flutt í Hveragerði. Aldrei bjóst ég nú við því að ég ætti eftir að búa þarna en lífið kemur manni sannarlega á óvart.

Eftir fótboltamótið á laugardaginn þann 29.apríl þá brunuðum við Helgi heim á skagann og héldum áfram að pakka og svona. Á sunnudeginum brunuðum við í Hveragerði til að fá afhent húsið og leist okkur bara ágætlega á. Fyrir utan það hvað við fengum það ógeðslegt. En við brunuðum svo aftur á skagann og kláruðum að pakka niður. Á mánudagsmorgninum komu svo foreldrar okkar, Tommi, Elísa og Sara vinkona hennar að hjálpa okkur að flytja. Það gekk bara vel fyrir sig og vorum við farin út rétt eftir hádegið. Þá fórum við í Hveragerði og byrjuðum á að fara í ,,fermingarveislu" hjá frænku hans Helga sem hafði fermst á sunnudeginum áður. Þar fengum við dýrindis hamborgarahrygg og annað tilheyrandi. Svo drifum við okkur að fara í húsið að bera inn. Við fengum svo húsið drulluskítugt og seinna meir tókum við eftir því að þau skulda okkur einn ofn í svefnherbergið því að það átti að vera allsstaðar nýjir ofnar og þar að auki lekur sá ofn. Þannig að það er leyndur galli sem við þurfum að láta vita af. Arnar (sem átti húsið) ætlaði svo að koma að sækja greinar sem hann hafði klippt en er ekki enn kominn. Þau hafa svo greinilega verið að reykja því að það var blómapottur úti á palli á hvolfi notaður sem öskubakki og Guðni sparkaði í hann þannig að það fór allt út um allt. Þau tóku það ekki einu sinni áður en þau fóru. Svo hafa þau bara rakað grasið út í eitt horn eftir að hafa slegið garðinn. Frekar leiðinlegt. Þegar allt var komið inn að þá fór ég með mömmu og pabba í smá heimsókn til Siggu og Gylfa, en auðvitað fór ég nú bara aðallega til að hitta Pésa kallinn (hundinn þeirra):D Við vorum nú ekki lengi þar. Ég fór svo bara heim og ég og Helgi byrjuðum á að raða í skápana í eldhúsinu. Svo fórum á Pizza Hveragerði og fengum okkur djúpsteikta ýsu með frönskum og sósu. Svaka gott. Fórum svo bara heim og héldum áfram að gera eldhúsið fínt. Svo vöknuðum við um 8 leytið á þriðjudeginum og fórum með jeppan á verkstæði til að láta balancera dekkin. Svo skiluðum við jeppanum heim og fórum í bæjinn á súkkunni. Fórum í Ikea og keyptum eitthvað smotterí þar, gardínur og svona, fórum svo í Europrise og ég missti mig þar í öllum gerviblómunum:D hehe... svo fórum við í kringluna og létum smíða fleiri lykla af húsinu og svo skelltum við okkur á Domino's. Fórum svo í Byko og hittum afa hans Helga, hann hjálpaði okkur með málningadótið sem við þurftum að kaupa. Keyptum tvo liti svefnherbergið og svo einn lit í stofuna. Svo brunuðum við bara heim og Helgi þurfti svo að fara að vinna á hellisheiðinni. Hann kom svo aftur heim um 6 leytið og við fórum í Bónus að versla. Elduðum svo bara pakkapizzu. Fengum svo fyrstu gestina sem voru langamma hans Helga, bróðir afa hans Helga og kona hans. Svo í gær var ég bara heima. Lærði eitthvað smá, fór svo aðeins út og sofnaði svo í alltof langan tíma. Helgi byrjaði að mála loftið í herberginu og í kvöld ætlar hann að byrja að mála herbergið. En í morgun vaknaði ég klukkan 8 og lagði af stað á akranes um hálf 10. Það gekk bara vel á leiðinni, ég var frekar stressuð í reykjavík en ég hef aldrei keyrt þar áður. En þetta gekk bara allt vel og slysalaust fyrir sig. Er ógeðslega stolt af sjálfri mér. En ég fór svo í próf klukkan 1 í dag, í félagsfræði. Gekk ekkert sérlega vel en ég vona bara það besta. Er núna bara hjá Evu að gera ekki neitt. Gisti hér í kvöld þar sem að ég er að fara í tvö próf á morgun, sögu og sálfræði. Er búin að vera að læra fyrir söguna en ég get bara ekki lesið bókina því aðég sofna bara. Þannig að ég ætla bara að láta glósurnar duga. En ég held að ég sé bara búin að skrifa nógu mikið í bili.... mikið að segja þegar maður er ekki búin að blogga lengi. En ég veit ekki hvenær ég blogga næst þar sem að hvorki netið né síminn var komið í gær hjá okkur en ég vona bara að það komi í dag þannig að ég get bloggað á morgun. En ég kveð bara að sinni...

Birgitta Ýr

P.S. Ég vil svo óska Kötu og Elísu Sjöfn innilega til hamingju með afmælið í dag. Vonandi hafið þið það sem best. Og vildi líka bara segja ykkur að ég og Helgi áttum eins árs trúlofunarafmæli á þriðjudaginn þann 2.maí:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 15:56:30 / birgittayr

Er farin...

Ég ætla bara að láta ykkur vita að ég veit ekki hvenær ég blogga aftur... Ég er að flytja númerið mitt í Hveragerði og það gerist einhvern tímann í dag. Veit ekki hvort að allt verði komið í lag á morgun í Hveragerði en ég vona það. En við fengum íbúðina í morgun og flytjum á morgun. En ég er bara á fullu að pakka núna þannig að ég kveð bara að sinni..

Kveðja Birgitta Ýr

P.S. Þið getið séð myndir af húsinu inná Dýramyndunum mínum, en það er tengill fyrir það til vinstri.

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 07:31:53 / birgittayr

Til hamingju Steinunn Lára

Helló.. ég ákvað að blogga núna því að ég hef ekki tíma í það í dag og get það ekki í kvöld.

Ég vil byrja á því að óska henni Steinunni Láru innilega til hamingju með 1 árs afmælið. Úff... liðið ár síðan að maður sá hana pínkulitla á fæðingardeildinni. Þetta er sko allt of fljótt að líða. En ég vona að hún hafi það sem allra best í dag:D

En í gærkvöldi fórum við Helgi á skútuna og fórum svo til Evu Óskar að kíkja á hvolpana. Lilo (tíkin hennar Evu) tók á móti okkur, voða sæt:D Og hvolparnir voru alveg æðislegir.. guð hvað maður varð spenntur að eignast hund bráðlega:D Úff... get ekki beðið. En þeir voru voða flottir og þeir eiga eftir að vera huge þar sem að þeir eru með eiginlega öll scheffer genin í sér. Enda eru þeir strax orðnir feitir og flottir:D Þegar við vorum búin hjá Evu að þá fórum við á bónúsvídjó og leigðum Herbie. Það var bara fín mynd sko:D Svo fór ég bara að sofa.

Vaknaði klukkan 7 og tók úr vélinni og hengdi upp og setti svo aftur í hana. Er svo alveg að fara að rölta í skólann. Eða eftir svona korter-tuttugu mínútur. Svo förum við á dimmisjón á eftir og svo förum við bara vestur. Komum við heima fyrst. Hitta Danna og sjá nýja ísskápinn hjá mömmu og pabba. Þau voru að kaupa sér amerískan ísskáp, tvöfaldan. Svaka flottan. Mig hefur alltaf langað til að eiga svoleiðis. Þau gátu ekki keypt svoleiðis á meðan að ég bjó hjá þeim. Öss öss.. hehe:D En svo förum við vestur og svo er fótboltamótið á morgun kl 10 á laugum og eftir það brunum við á skagann.

Jæja.. ég ætla bara að hafa þetta gott í bili, get ekki bloggað á eftir þar sem að ég þarf að fara að láta afþinglýsa íbúðinni hér á skaganum og fara svo í símann og biðja þau um að færa símann okkar og netið í Hveragerði á mánudaginn. En hafið það öll gott og vonandi hittir maður sem flesta á morgun á mótinu.

Kveðja Birgitta Ýr

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 18:34:50 / birgittayr

1 dagur eftir

Hjélló.. það er snillingurinn sem skrifar hér:D hehe... ég er bara ennþá svo ánægð með að hafa náð þýskunni og auk þess komst ég að því í dag að ég er líka búin að ná enskunni:D

Í gærkvöldi gerði maður voða lítið. Við skoðuðum liti til að mála hjónaherbergið. Fékk svo svaka mígreni og lá bara í sófanum. Fór svo að sofa um 10 leytið. Ég þurfti svo ekkert að mæta í skólann í morgun fyrr en 10:20. Ég vaknaði korter í 9 og fór í sturtu og blés hárið á mér og mætti svo í skólann. Fór fyrst í félagsfræði og það var bara upprifjunartími, fór svo í sögu og fékk úr prófinu, fékk 4. Það finnst mér bara ágætt miða við hin prófin:D hehe... svo fór ég í jóga og það var bara verið að tala um orkustöðvarnar og Erla var svo með RopeYoga bekkinn sinn og var að sýna okkur hvernig hann virkaði. Svo fór ég í ensku og fékk út úr prófinu sem við tókum í gær, ég fékk 7,8:D Mjög gott. Svo sýndi hún mér lokaeinkunnina mína en hún á reyndar eftir að hækka, var með 5,7 núna en hún á eftir að fara yfir kjörbókaritgerðina þannig að hún á eftir að hækka. Svo dreif ég mig bara heim og er eiginlega bara ekki búin að gera rassgat. Okkur vantar fleiri kassa til að pakka niður og það er svo viðbjóðslegt hérna inni að það er ekki eðlilegt sko... oj bara. En já, við Helgi ætlum svo bara á skútuna þegar hann kemur heim. Þar sem að allir pottarnir mínir og pönnur eru komnir ofan í kassa. Þá getur maður ekki eldað neitt. Svo ætlum við að kíkja til Evu Óskar í kvöld og sjá hvolpana hennar. Hún er búin að skíra einn, en hann heitir Bronco:D hehe.. finnst það heavy fyndið:D En ég mæti í fyrramálið klukkan 8 í sögu og svo kl 9:05 í félagsfræði. Svo er ég bara búin í skólanum. Það er frjáls mæting í sálfræði kl 10:20 og enska fellur niður klukkan 11:30 vegna dimmisjón og svo er frí í jóga kl 13:10. En Helgi er í fríi á morgun þannig að við förum bara snemma vestur. Förum líklegast bara eftir dimmisjón.

Ég veit bara ekkert hvað ég get bullað meir. Þannig að ég ætla bara að segja þetta gott í bili...

Kveðja Birgitta Ýr

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 14:29:42 / birgittayr

2 dagar eftir

Jæja, nú ákvað snillingurinn eini að blogga meir:D Hehe.. já ég er sko enn í skýjunum yfir því hvað ég er æðislega dugleg og gáfuð að hafa náð þessu:D Hahahaha djók:!: Kannski ekki alveg, en ég held meira að segja að ég sé búin að ná enskunni.. vona það allaveganna:D Trúi ekki öðru...

Í gær tókum við Helgi alveg svaka tiltektarkast og pökkuðum og pökkuðum... ógeðslega dugleg. Ég þarf nefnilega alltaf að komast í stuð til að gera eitthvað, og ég geri það best ef ég er í alveg heavy miklu stuði. Ég setti bara Britney Spears í dvd spilarann og blastaði sjónvarpinu;) hehe... Helgi var í því að pakka niður inn í eldhúsi og hann pakkaði meira að segja niður pottunum þannig að það þýðir að ég þarf ekkert að elda meir á næstunni:D Újé, það er nú aldrei leiðinlegt.. hehe:D En ég sat hér í skrifborðsstólnum okkar og var að taka til allt skóladótið, henda gömlum verkefnum frá því 2004 eða eitthvað álíka og taka til bækur og svona. En það er líka eins og það hafi komi fellibylur hingað inn því að það er allt á hvolfi. Og hver nennir að taka til á meðan að maður er að pakka? ENGINN auðvitað.. hehe;) En við pökkum i kvöld meira og á morgun, ætlum reyndar að kíkja annað kvöld til Evu Óskar og hvolpanna:D Svo pökkum við eitthvað meira, svo förum við bara vestur á föstudaginn og komum aftur á skagann á laugardaginn eftir mótið og höldum áfram að pakka og munum líklegast klára það þá. Helgi fer svo í Hveragerði á sunnudaginn í fermingu og í leiðinni tekur hann lyklana hjá Arnari og Thelmu. En ég verð heima, líklegast að læra eitthvað og klára ef það er eitthvað eftir, þrífa auðvitað og svona. Svo ætlar karlinn bara að taka íbúðina strax á mánudaginn þegar við erum búin að tæma og þrífa.

Í morgun dreif ég mig í skólann í hundleiðinlegan íslenskutíma, en reyndar brá okkur smá í þeim tíma. Bjallan hringdi og allir stóðu upp og þá þakkaði Steingrímur okkur fyrir önnina og sagði að það væri frí á morgun:!: Það stoppuðu allir og voru bara í smá sjokki... enda er þetta Steingrímur Braga og hann er ekki búinn að vera einn einasta dag veikur eða fjarverandi á þessari önn. En já, svo fórum við Rakel í þýsku og ég er nú búin að segja ykkur frá þeim frábæra tíma. En hún gaf okkur líka frí á morgun:D Þannig að ég þarf ekki að mæta í skólann fyrr en 10:20 á morgun. En Rakel er reyndar bara farin vestur. Hún þurfti ekki að mæta í nema einn tíma á morgun kl 14:10 sem er jóga þannig að hún fór bara heim, því að hún þurfti ekki að mæta í marga tíma á föstudaginn heldur. En ég fer í félagsfræði, sögu, jóga og seinasta ensku tímann á morgun. En já, eftir þýskuna fór ég í sálfræði og við vorum bara að klára þau verkefni sem við áttum eftir að skila og ég náði næstum eftir að klára, ég átti bara svo ógeðslega mikið eftir eitthvað... Svo fórum við í umsjón og fengum könnun eins og vanalega, og þetta var um fiskneyslu, við vorum líka bara: "eruð þið ekki að djóka". Þetta var bara mest ruglaðasta könnun sem ég hef nokkurn tímann lent í. Algert bull bara út í eitt... en svo fórum við Rakel í bakaríið, í nettó til að fá kassa og svo til hennar, hjálpaði henni að fara með sjónvarpsskápinn út í bíl og svo fór ég bara aftur upp í skóla og borðaði og kláraði svo sálfræðiverkefnið og skilaði því og fór svo í ensku í próf þar sem að við máttum vera með allt dótið með okkur, veit ekkert hvernig mér gekk. Vona bara að mér hafi gengið ágætlega sko... Svo kom ég heim klukkan 2 og er bara að hlusta á Britney Spears aftur. Þegar ég er búin með þetta blogg að þá fer ég að setja í þvottavélina og henda öllum þessum blöðum og bókum sem ég fann í gær úr skólanum... Átti meira að segja ennþá íþróttavinnubókina... haha:!: Síðan að ég var sko busi.. ótrúlegt:D hehe... En svo á ég tíma í klippingu og litun kl 4 á eftir:D Jeij.. get ekki beðið eftir að verða fín:D

En jæja.... ég held að þetta sé orðin alltof löng færsla og að enginn nennir að lesa um þetta óspennandi líf mitt... veit, veit.. aðrir hafa spennandi fréttir að segja frá:D hehe... en jæja, þetta er komið gott í bili... þangað til á morgun:D

Kveðja Birgitta Ýr

P.S. Ekki gleyma færslunni minni síðan í morgun....

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 09:57:31 / birgittayr

Ég er snillingur:D

Ég ætla bara að segja ykkur að ég er snillingur af guðs náð, ég, Birgitta Ýr Sævarsdóttir náði ÞÝSKU 303:D Já þið lásuð rétt:!: Ég bjóst nú engan vegin við þessu en ég er bara betri en ég hélt;) Hehe.. en ég fékk 4,9 úr yfirlitsprófinu, 8 í hlustunarprófinu og 5,1 eða 5 úr áfanganum:!: Já þetta er æðislegt.. ég var næstum því farin að gráta í tíma af ánægju, en ég er eiginlega bara í sjokki.

Ég vildi bara deila þessum hamingjufréttum með ykkur en ég blogga meir á eftir.

Kveðja Birgitta Ýr


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 19:10:40 / birgittayr

3 dagar...

Úff hvað maður bloggar seint í dag en ég bara nennti því ekki í hádeginu. En núna eru bara 3 dagar eftir af skólanum:D Jibbíí... loksins er þetta að taka enda...

Í gær var maður bara fyrir framan sjónvarpið. Horfði á Strákan, Grey's Anatomy, The O.C. og Lost. En djöfull var lost spennandi og ég var sko engan vegin sátt með það sem Sawyer og Charlie voru að gera.. en svona er lífið.. hehe;) En eftir lost fór ég bara að sofa. Vaknaði svo í morgun og skellti mér í skólann, fór í íslensku og lærði fyrir þýsku- og sögupróf þar. Fór svo í þýsku og mér gekk svona allt í lagi í prófinu, eða vona það allaveganna, en ég býst samt ekki við neinni hárri einkunn. Svo fór ég í sögu og fór í próf þar líka, veit ekki alveg hvernig mér gekk en allaveganna betur en vanalega í söguprófum;) hehe... svo fór ég í félagsfræði og þar var bara upprifjun, hundleiðinlegt. Svo talaði ég aðeins við mömmu og fór svo í sálfræði og ensku tíma. Við vorum 5 hópar í ensku að flytja eitthvað verkefni um fréttir úr sérstökum löndum eða eitthvað álíka. 4 hópar völdu fréttir frá Englandi og minn hópur var sá eini sem valdi fréttir frá Ameríku. En allir hóparnir 5 voru með fréttina um að englandsdrottning ætti afmæli... haha, algjör snilld. En við vorum með það hjá okkur sem áhugaverða frétt og hún þurfti ekki að vera frá neinu sérstöku landi. En svo eftir tímann dreif ég mig heim og horfði á Friends. Reyndi svo tvisvar að hringja í Telmu sem við erum að kaupa húsið af en það svaraði aldrei. Svo horfði ég bara á leiðarljós, glæstar vonir og nágranna og svo hringdi ég aftur í Telmu og þá svaraði hún loksins. En ég var að segja henni hvenær við vorum að pæla í að fá afhent húsið. En við ætlum að fá það á sunnudaginn en þá fer Helgi í Hveragerði í fermingu. Svo flytjum við 1.maí, alveg. Nema ef við þurfum að borga hálfa leigu fyrir maí mánuð að þá ætla ég að vera hér áfram, þá flytjum við bara stóra dótið. En það er svo mikið stress samt að flytja eftir 6 daga því að við erum eiginlega ekki búin að pakka neitt. Erum búin að taka spólurnar, stytturnar, myndir og heimabíóið. Ekkert annað... eigum alveg eftir að taka allt úr eldhúsinu og bara allt saman. Úff, þvílíkt stress í gangi sko... og við eigum bara tvo kassa eftir hér á skaganum, en pabbi ætlar að redda fyrir okkur kassa úr mjólkurstöðinni og við tökum þá á föstudaginn. Við ætlum að stoppa aðeins við heima á föstudaginn, maður verður nú að kíkja á "soninn". Sakna hans ekkert smá.. litla rassgatið mitt. Hann var einn heima í fyrsta sinn yfir helgi núna seinustu helgi. Og greyjið mitt... Herdís hringdi í mig á sunnudagskvöldið því aðhann var alltaf að leita til þeirra því að kattalúgan heima stóð eitthvað á sér og hann komst ekki inn, þannig að ég hringdi í Ásdísi því að hún var með lykla heima og var að gefa þeim að borða yfir helgina og bað hana að fara að opna fyrir honum. Svo var hann víst voðalega ánægður þegar mamma og pabbi komu heim seinna um kvöldið.

En jæja.. ég hef nú ekkert meira að segja í bili, er bara að bíða eftir að Helgi komi heim. Hann ætlar að kaupa langloku í leiðinni, ég nennti ekki að elda í kvöld.. veit að ég er löt en það er bara svo hundleiðinlegt að elda á hverju kvöldi:!: Sérstaklega þegar maður kann ekki að elda það mikið.. en vonandi bætist það í sumar...

Kveðja Birgitta Ýr

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 14:28:07 / birgittayr

4 dagar eftir af skólanum

Hæj... núna eru bara 4 dagar eftir af skólanum og þá eru bara prófin eftir og svo sumarfrí, eða semsagt vinna... stuð, stuð:!:

Ég fór í ferminguna í gær. Svaka stuð. Þvílík barnasprengja sem var þarna. Inga Dröfn var með sinn litla, Katla var með strákinn sinn, Kolbrún frænka með Daníel Frey og Svala og Einar með Katrínu. Og svo voru fullt af öðrum börnum sem voru eldri. Svo gerðist nú eitt skemmtilegt hjá Sigrúnu og Jöra í gær. Annar kötturinn hjá þeim eignaðist einn kettling um nóttina. Haha... þau vissu ekkert að hún væri kettlingafull, en hún Anna frænka mín er svo sniðug, henni langaði svo að eignast kettling að hún hætti að gefa kettinum pilluna...haha:D Snillingur;) En hann var ofboðslega lítill og sætur:D

Ég var í veislunni í 1 og hálfan tíma og Helgi var í hálf tíma. Við ákváðum að skella okkur bara í bíó, fórum á Ice Age 2 sem er bara snilld... hún er eiginlega bara betri en fyrsta myndin... ég hló af mér rassgatið:D Mæli sko eindregið með henni... Svo komum við heim og ég fór bara að sofa strax, klukkan korter yfir 9. Var bara að deyja í hausnum og maganum:(

Í morgun mætti ég í skólann, fór í hlustunarpróf í þýsku og gekk alveg hræðilega, fór svo í íslensku, sögu, félagsfræði og sálfræði og svo röltum við Rakel heim. Byrjaði svo bara á því að blogga en annars þarf ég að fara að læra fyrir þýsku yfirlitsprófið og söguprófið. En þau verða bæði á morgun, ég er engan veginn að nenna því, enda er ég fallin í þýskunni..:( Kann heldur ekki að læra fyrir próf... skil ekki hvernig það er hægt, ef þetta er ekki komið í hausinn ámér núna að þá fer það ekkert þangað, þannig er það bara...:S

En jæja, ætla að segja þetta gott í bili...

Kveðja Birgitta Ýr

» 6 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 11:09:00 / birgittayr

...

Hæj, ég ákvað að blogga aðeins núna því að ég fer í fermninguna á eftir og veit ekkert hvenær ég kem heim og ég nenni ekki að blogga í kvöld. En ég hef nú ekki mikið að segja. Ég og Helgi elduðum kjúlla í gær og hann var bara ágætur og við leigðum svo tvær myndir. "Into the Blue" og Magdalenu systur. Sú seinni er heavy góð, mæli eindregið með henni og hún er sönn. Þetta var semsagt um þrjár stelpur, einni var nauðgað og hún var þá send í klaustur, ein eignaðist barn utan hjónabands og hún var neydd til að gefa strákinn sinn til ættleiðingar og hún var send í klaustrið og svo var sú þriðja munaðarlaus og hún daðraði við strákana sem stóðu alltaf við hliðið á munaðarleysingjahælinu, þannig að hún var send í klaustrið. Og þær voru allar þrælar nunnanna og þetta var bara ömurlegt líf fyrir greyjin. En þær sluppu allar á endanum. Bróðir þeirrar sem var nauðgað kom og sótti hana eftir fjögur ár og hún fór fyrst. Svo hinar tvær struku saman. En ég mæli sko eindregið með þessari mynd, hún er klikkuð.

Ég vaknaði klukkan 10 í morgun. Var svo bara að koma úr sturtu. Ætla svo að blása á mér hárið og gera mig svo fína. En ég og Eva förum um 2-3 leytið í bæjinn. Veislan er bara hjá Sigrúnu og Jöra á álftanesinu, enda eiga þau huge hús. Helgi er að vinna, hann mætti klukkan 7 í morgun, svo kemur hann í veisluna strax eftir vinnu.

Ég er að fara í tvö próf á þriðjudaginn, og annað þeirra er virkilega mikilvægt. Er semsagt að fara í yfirlitsprófið í þýsku, en ég er hvort sem er fallin, en samt betra að standa sig vel í því því að þá hækkar maður sig aðeins allaveganna. En svo er ég að fara í sögu próf, en mér hefur ekkert gengið vel í hinum tveimur sem eru búin að vera. Þannig að ég stórefast um að mér eigi eftir að ganga vel. Ætla að leggja meiri áherslu á þýskuna. En ég og Rakel ætlum að fara í fjarnám í sumar. Ætlum allaveganna að taka þýsku, ef við föllum báðar að þá tökum við 303 en ef við náum að þá tökum við 403, og svo vorum við að pæla í að taka einn náttúrufræðiáfanga. Rakel á alla eftir en ég á bara tvo eftir. Tók 103 tvisvar og á 113 og 123 eftir. Hata náttúrufræði. Rugl og vitleysa marrh...

En jæja, ætla að segja þetta gott í bili og fá mér eitthvað borða..

Kveðja Birgitta Ýr

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 13:45:16 / birgittayr

Helgin

Þá er bara kominn laugardagur og einn frídagur eftir og svo skólavika:( Oh.. ég er komin með svo viðbjóðslegan skólaleiða að það er ekkert eðlilegt... get ekki beðið eftir að vera búin með næstu viku:!:

Í gær þá eldaði ég fiskilummur í kvöldmatinn. Svo fór ég í sturtu... svo horfðum við Helgi á Stelpurnar, two and a half man og svo beuty and the geek. Mér finnst það snilldar þættir:D hehe... Og þeir eru nú frekar sniðugir. En já.. svo þegar það var búið að þá fór ég að sofa. Helgi fór svo í vinnuna kl 7 í morgun en ég svaf áfram. Vaknaði svo rétt fyrir 10. Horfði á nágranna sem ég tók upp í gær og horfði svo á Friends. Svo fór ég að reyna að finna mér einhver föt til að fara í morgun, en fann ekkert eins og vanalega. Nema bara hvíta síða pilsið mitt sem mig langar að fara í, en þá á ég enga hvíta skó, BÖGG, en svo fann ég bara þetta vanalega. Annars endar það örugglega bara með því að ég fari í gallabuxum. En svo er ég búin að vera að pakka niður styttunum mínum, þær eru svo heilagar fyrir mér.. ég er svo styttu sjúk.. hehe.. á allt of mikið af þeim:!:8| En ég er samt ekki með einu sinni helminginn af því sem ég á ... ætla að taka fleiri með mér í hveragerði. Svo er svo mikið drasl hjá okkur og mig langar svo að taka til en er bara ekki að nenna því, enda er maður á fullu að pakka niður og þá fer hvort sem er allt útum allt aftur. Bögg...en svona er lífið. Svo veit ég ekkert hvað maður gerir í kvöld.. hangir örugglega bara heima og gerir ekki rass í bala. Nema kannski að pakka meira niður eða horfa á sjónvarpið. En annars ætla ég að elda kjúkling í kvöld og hafa franskar og ferskt salat með... nammi:D

En ég hef ekkert meira að segja í bili...

Kveðja Birgitta Ýr

P.S. Edda og Addi eru búin að skíra og prinsessan heitir  Dagný Þóra. Þá eru komnar tvær Dagnýar í dölunum:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 12:51:56 / birgittayr

Vikan að enda

Hæj... seinasti skóladagurinn í þessari viku að taka enda. Loksins, á bara einn tíma eftir og svo er ég búin í dag og þá fer maður bara heim og hefur það gott:D

Í gær eldaði ég gott fyrir mig og Helga:D Lærði það hjá Evu:D Svo þegar við vorum búin að borða að þá fórum við í Bónúsvídjó og ég fékk mér ís, fórum svo aðeins á rúntinn og svo bara heim. Ég horfði svo á Nip/Tuck. Þetta var lokaþátturinn og hann var ógeðslegur. Það er eins gott að það komi önnur sería. En sá sem var útskurðarmaðurinn grunaði maður sko engann veginn þegar maður sá í næst seinasta þættinum að hann væri ekki einu sinni með typpi sá karl. Og svo bjóst maður heldur aldrei við að löggukonan væri systir hans og væri með honum í þessu öllu saman. En þetta er furðulegt sko... ótrúlegt hvernig liðið hugsar sem býr þessa þætti til. Og svo var ég næstum farin að gráta þegar Matt átti að skera undan sér SJÁLFUR og þegar hann skar undan Cherry. Þetta var viðbjóður:( Oj bara.. en þetta endaði frekar ílla, því að það er eitthvað að barninu hjá Julie og við vitum ekki hvað það er:!: BÖGG:!: En þegar þátturinn var búinn að þá fór ég bara að sofa.

Vaknaði í morgun bara á venjulegum tíma og labbaði svo í skólann í rigningu. Svaka stuð... fór í sögutíma og svo var eyða í félagsfræði. Fór svo í sálfræði, og þetta var mjög kjánalegur tími, nenni ekki að útskýra það betur. Lenti svo í þvílíku rugli marrh, ég ætlaði að prenta út ritgerðina í ensku í morgun í skólanum og ég hélt að ég hefði gert það, svo loggaði ég mig úr tölvunni og þá var ekkert í prentaranum, þannig að ég ákvað að fara bara rétt áður en tíminn myndi byrja og þá komst ég aldrei inn í skjalið. Mætti svo í tímann og sagði henni að ég gæti ekki prentað út því að talvan vildi ekki opna skjalið fyrir mig. Svo sagði Daði sem er með mér í tíma að hann hefði tekið blöðin mín því að hann hefði verið að prenta á sama tíma og ég um morguninn og hefði óvart tekið þau með en setti þau svo aftur i prentarann. Og ég stökk þá á bókasafnið og þar var ritgerðin mín:!: Sem betur fer marrh, hehe:) En já, við vorum svo bara að gera eitthvað leiðinlegt verkefni sem við eigum svo að flytja á þriðjudaginn. En ég og Gunnfríður vorum búnar með okkar klukkan 12 þannig að við máttum bara fara. Og er bara búin að vera í tölvunni síðan. Svaka stuð:!:

Núna eru allir að skipta um blogg. Ég var að pæla í því líka en mér finnst útlitið á þessari síður bara svo fín og ég er búin að gera hana svo fína þannig að ég nenni ekki að vera að breyta. Geri það kannski einhvern tímann seinna.

Maður verður bara í því að pakka og pakka alla helgina. Svaka gaman... ég hata að flytja, enda er ég búin að flytja 9 sinnum og er að fara að flytja núna í tíunda sinn held ég bara. Ógeðslega gaman eða hitt og heldur.. en svona er lífið. En ég ætla heldur ekkert að flytja á næstunni þegar ég er flutt í Hveragerði... GLÆTAN sko:D hehe...

En jæja, ég hef ekkert meira að segja, fer bráðum í jóga, er samt engan veginn að nenna því, en þetta er seinasti tíminn og svo HEIM:!: En kveð að sinni.

Birgitta Ýr

P.S. Erna kærastan hans Tomma á afmæli í dag. Til hamingju með það Erna:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 12:37:20 / birgittayr

Sumardagurinn fyrsti

Gleðilegt sumar segi ég nú bara.. sumarið er komið í dag.. en það er örugglega farið á morgun eins og vanalega. 

Í gærkvöldi þá leigðum við Helgi okkur vídjó. Skeleton Key, hún er ógeðslega góð. Mæli með henni ef fólk er ekki enn búið að sjá hana. En þegar myndin var búin að þá skelltum við Helgi okkur bara í svefninn. Ég vaknaði svo í morgun tuttugu mínútur í níu en ég ætlaði ekkert að vakna fyrr en tíu. En jæja, svona er þetta bara. Það var líka orðið svo bjart að þá er erfitt að sofa lengur. En ég fór þá bara fram og setti Friends í tækið. Svo skellti ég mér bara í föt eftir það og fór í búðina til að kaupa inn. Fyllti alveg tvo poka. Öss... alveg orðin óð í innkaupunum:D ehe..;) En svo kom ég bara heim, tók úr pokunum og skellti mér svo í tölvuna. Er svo búin að vera að læra og klára ritgerðina í ensku. Er ekki enn búin. Ritgerðin á að vera 1500-2000 orð eða 3-4 bls og ég er rétt svo að klára bls tvö með 746 orðum eða eitthvað álíka. BÖGG:!: Ég get bara ekki gert þessa fáránlegu ritgerð:!: En ég reyni að klára þetta á eftir. Var að pæla í að fara að ryksuga hérna og pakka kannski eitthvað aðeins niður. Er samt eiginlega ekki að nenna því strax. Gera það frekar um helgina. Þá fæ ég líka fleiri kassa.

Er einhver að fara í bæjinn frá skaganum á föstudaginn eftir skóla? Bara svona ef einhver er að fara að þá væri flott ef ég gæti fengið far. Eða kannski allaveganna. Ég og Helgi ætlum kannski að kíkja í bíó og ég nenni ekki með þessum strætó. Hann er alltaf á svo fáránlegum tíma. Þoli það ekki. En allaveganna megið þið láta mig vita ef þið vitið um einhvern:!:

Ég er að pæla í að fara að gera eitthvað. Hef ekkert meira að segja. En ég vil minna ykkur á seinasta þáttinn í Nip/Tuck í kvöld:!: Það má nú enginn gleyma því:!:

Kveðja Birgitta Ýr

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 14:31:28 / birgittayr

Skólinn byrjaður:(

Úff... skólinn byrjaði í morgun... djöfull saknaði ég þess sko engan veginn að vera í skólanum.. miklu betra að vera bara að vinna. Maður fær þó allaveganna eitthvað fyrir það.. eða peninga semsagt:D hehe... þeir eru nú alltaf skemmtilegir og æðislegt að eiga nóg af þeim:D

Í gærkvöldi hringdi Elísa Sjöfn í mig, þá var hún komin á skagann með Tomma, þau komu frekar seint og strætóinn var hættur að ganga þannig að hún spurði hvort hún gæti fengið gistingu hjá mér. Það var nú ekkert mál að redda henni smá gistingu. En ég var nú bara með sófann og teppi, ekkert annað... Það er nú í lagi yfir eina nótt. En ég fór svo bara að sofa og var alveg heillengi að sofna... Helgi hraut og hraut eins og ég veit ekki hvað, hann hefur aldrei hrotið svona ofboðslega mikið áður. En ég sagði honum að hætta að hrjóta á endanum, þá var ég alveg komin með upp í kok.. hehe;) Svo sofnaði ég loksins. Svo í morgun þegar Helgi vaknaði að þá var bara kominn dagur... klukkan hálf 6. Þvílík birta.. svo vaknaði ég korter yfir 7 og gerði mig bara klára í skólann. Fór í íslensku, þýsku, sálfræði og svo í umsjón. Þar var einhver heillöng könnun frá einhverjum kellingum í Háskóla Íslands. En við fengum ógeðslegt gos í staðinn fyrir að taka hana... ógeðslegan egils kristal nýja þarna ruglið.. finnst þetta allt ógeðslegt...:( Svo fór ég bara heim. Ég veit ég er ömurleg í mætingu, en ég nennti bara ekki að mæta í ensku eftir hádegi. Nenni ekki að hanga í skólanum í löngu hádegi og gera ekki sjitt til að fara í einn tíma... finnst það bara óþolandi. Þannig að ég fór bara heim, horfði á nágranna og svo á Nip/Tuck sem ég tók upp í gær... þvílík spenna. Bara einn þáttur eftir.. OMG:!: Og þá kemur líka í ljós hver útskurðarmaðurinn er.. það er sko ógeðslega spennandi og ég get ekki beðið eftir að sjá þáttinn á morgun... OMG:!: Reyndar ógeðslega leiðinlegt að serían er að klárast... en einhvern tímann verður hún nú að klárast... er þaggi? Vona bara að það komi önnur sería. Svo er ég búin að setja í eina vél og hengja upp, er með núna í annarri.. þvílíkur þvottur maður... öss.. rugl og vitleysa.. hehe;) En ég þyrfti eiginlega að vera að læra núna, en er ekki að nenna því, ætla bara að læra á morgun og vera ógeðslega dugleg...:D Hehe.. bara til að klára þetta rugl allt sem ég þarf að klára, þá er það bara búið.

Á sunnudaginn er ég að fara í fermingu... en annars ætlum við Helgi einhvern tímann bráðlega í bíó á ICE AGE: The meltdown... get ekki beðið.. :D Vona bara að við gerum það um helgina því að annars þurfum við að gera það í næstu viku og ég nenni því ekki.. enda er Helgi líka alltaf að vinna svo lengi að hann er alltaf orðinn svo þreyttur á kvöldin og þegar hann kemur heim...

Það er nú spurning hvað ég á að elda í kvöld... ég nenni ekki út í búð, og svo erum við líka solldið blönk þannig að við erum að reyna að borða bara allt sem er til hér heima. Ætla að fara að tjékka á því hvað er til í skápunum hjá mér. En ég nenni ekki að hafa þetta lengra, ætla að fara að fá mér pizzu..:D

Kveðja Birgitta Ýr

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 14:28:07 / birgittayr

Skóli á morgun:(

Hæj.. það er skóli á morgun:( Guð minn eini hvað ég er engan veginn að nenna því rugli:( Oj bara.. hata skólann... en það eru bara tveir dagar í þessari viku og svo hin vikan og svo eru bara prófin eftir.

Ég gerði ekki sjitt í gær eftir vinnu. Horfði bara á The O.C. klukkan átta, fór svo niður og hreinsaði kattasandinn, talaði svo aðeins við Helga. Fór svo aðeins í tölvuna og fór svo að prjóna og horfði á Lost, báða þættina. Svo eftir það horfði ég á flash dance og fór svo bara að sofa. Vaknaði svo í morgun klukkan hálf 11, fékk mér að borða og fór að pakka niður. Byrjaði svo aðeins á ritgerðinni í ensku. Fór svo aðeins upp í búð um 12 leytið og keypti mér langloku. Er svo bara búin að vera heima að gera þessa blessuðu ritgerð, fann einhverja síðu á netinu um bókina. Nenni sko ekki að lesa hana. Er ekki ennþá búin með ritgerðina. Geri eitthvað meira í henni í kvöld þegar ég er komin á skagann. En ég fer heim á eftir um 5-6 leytið. Fer bara með Evu Dröfn. Skil Danna minn eftir:( Ég á eftir að sakna hans en þetta er nú ekki langur tími.

Næstu helgi verð ég bara á skaganum. Ætli maður verði ekki bara í því að pakka og svona og byrja kannski að læra aðeins fyrir próf. Svo er ferming hjá Önnu Ragnheiði á sunnudaginn. Fer í hana.. svo er bara skóli og svo helgina eftir það er fótboltamótið hér fyrir vestan. Og við fáum líklegast afhenta íbúðina 28.apríl:D Jeij... og svo 1.maí ætlum við að flytja allt stóra dótið okkar í Hveragerði. Ætlum bara að hafa sófann  hjá okkur, sjónvarpið, tölvuna, stofuborðið, þvottavélina og svo bara einhverja litla hluti. En svo byrja prófin hjá mér 4.maí þannig að ég verð bara að vera að læra og læra. Er svo búin í prófunum 9.maí. Þá klára maður bara að pakka niður og svo ætla mamma og pabbi að koma helgina eftir það og hjálpa okkur að fara með rest og þrífa íbúðina svo við getum bara afhent hana sömu helgina þá erum við bara laus við hana. Sem er mjög gott... og svo fer ég bara strax eftir það heim í Búðardal að vinna.

Ég hef ekkert meira að bulla um... en getur einhver kennt mér að gera svona banner.. skil þetta engan veginn:( En ég kveð bara að sinni...

Birgitta Ýr


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 18:32:38 / birgittayr

...

Hæj. Hvað er að frétta hjá fólki? Voðalega lítið hjá mér.. ég hef bara verið í smá fríi frá blogginu um páskana. Það er svo margt annað sem maður þarf að gera og svona. En ég er samt búin að vera dugleg við þetta eins og alltaf:D hehe...

Það er ekkert að gerast hjá mér í augnablikinu. Er bara búin að vera að vinna alla páskana, ógeðslega dugleg:D En þetta var seinasti vinnudagurinn í dag. En á laugardaginn þá fóru Helgi og Eva Dröfn á pöbbinn. Ég nennti ekki að reyna að komast inn. Fór bara í staðin að passa fyrir Örnu Dögg. En ég var bara í einn og hálfan tíma. Þá kom hún heim. Nennti víst ekki að vera lengur. Þannig að ég dreif mig bara heim og fór að sofa. Svo kom Helgi heim um 3 leytið og var hann frekar fullur greyjið kallinn og var hann að deyja úr þynnku daginn eftir. Ógeðslega fyndið, svo var allur dagurinn bara leti dagur. Svo fengum við hamborgarahrygg í kvöldmatinn, ógeðslega gott. Svo lá maður bara enn í leti og horfði á Bridget Jones 2 myndina. Hún var snilld. En Helgi fór heim í dag á skagann. Svo fer ég á morgun. En allur morgundagurinn mun fara í það að ég verði að klára að lesa þessa ógeðslega leiðinlegu enskubók sem ég þarf að skila ritgerð úr á miðvikudaginn. En jæja, ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili.

Kveðja Birgitta Ýr


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
23. febrúar 2012